Nokia 6030 - Rafhlaðan hlaðin

background image

Rafhlaðan hlaðin

Viðvörun: Aðeins skal nota rafhlöður, hleðslutæki og aukahluti sem Nokia hefur samþykkt til nota með þessari
tilteknu tegund. Ef notaðar eru aðrar gerðir gæti öll ábyrgð og samþykki fallið niður og slíkri notkun getur fylgt
hætta.

Athuga ber tegundarnúmer hleðslutækja áður en þau eru notuð með þessu tæki. Þetta tæki er ætlað til notkunar hlaðið
raforku frá ACP-7 og ACP-12 hleðslutækjum. Þetta tæki er ætlað til notkunar með BL-5C rafhlöðu.

1. Stingdu hleðslutækinu í samband við rafmagnsinnstungu. Ef rafhlaðan er alveg tóm geta liðið nokkrar

mínútur þar til hleðsluvísirinn birtist á skjánum eða hægt er að hringja úr símanum.

2. Stingdu snúrunni úr hleðslutækinu í tengilinn neðst á símanum.

Hleðslutíminn fer eftir hleðslutækinu og rafhlöðunni.

Seljandi símans veitir upplýsingar um fáanlega aukahluti sem samþykktir eru til
notkunar. Þegar aukahlutur er tekinn úr sambandi skal taka í klóna, ekki leiðsluna.