Nokia 6030 - SIM-korti og rafhlöðu komið fyrir

background image

SIM-korti og rafhlöðu komið fyrir

Öll SIM-kort skal geyma þar sem lítil börn ná ekki til.

Upplýsingar um framboð og notkun SIM-korta má fá hjá seljanda SIM-kortsins. Þetta getur verið þjónustuveitan,
símafyrirtækið eða annar söluaðili.

Alltaf skal slökkva á tækinu og aftengja hleðslutækið áður en rafhlaðan er fjarlægð.

Til athugunar: Slökktu alltaf á tækinu og aftengdu hleðslutækið og önnur tæki áður en fram- og bakhlið eru
fjarlægðar. Forðast skal að snerta rafræna íhluti þegar verið er að skipta um fram- og bakhliðar. Alltaf skal geyma
og nota tækið með áföstum fram- og bakhliðum.

1. Til að fjarlægja bakhlið símans:

Styddu á bakhliðina og renndu henni að neðri hluta símans. Losaðu hana svo af
símanum.

2. Fjarlægðu rafhlöðuna með því að lyfta henni eins og sýnt er á myndinni.

background image

15

Copyright

© 2006 Nokia. All rights reserved.

3. Losaðu SIM-kortsfestinguna með því að toga varlega í hana og opnaðu hana

svo.

4. Settu SIM-kortið í símann þannig að skáhornið vísi upp og til hægri og gyllti

snertiflöturinn vísi niður. Lokaðu SIM-kortsfestingunni og ýttu henni á sinn
stað.

5. Settu rafhlöðuna í rafhlöðufestinguna.

6. Settu bakhlið símans aftur á hann og renndu henni upp. Ýttu bakhliðinni alveg

að efri hluta símans til að læsa henni.

background image

16

Copyright

© 2006 Nokia. All rights reserved.