Öryggiseining
Öryggiseining getur innihaldið vottorð sem og einkalykla og dreifilykla. Tilgangur öryggiseiningarinnar er að
bæta öryggisþjónustu forrita sem þurfa vafratengingu og hún gefur þér kost á að nota rafræna undirskrift.
Þjónustuveitan vistar vottanirnar í öryggiseiningunni.
Veldu
Valmynd
>
Vefur
>
Stillingar
>
Öryggisstillingar
>
Stillingar fyrir öryggiseiningu
. Veldu úr eftirfarandi
valkostum:
•
Upplýs. um öryggiseiningu
til að sýna heiti öryggiseiningarinnar, stöðu, framleiðanda og raðnúmer.
•
Biður um PIN f. öryggiseiningu
til að stilla símann þannig að hann biðji um PIN-númer einingar þegar notuð
er þjónusta öryggiseiningar. Sláðu inn númerið og veldu
Kveikja
. Ef ekki á að láta biðja um PIN-númer
öryggiseiningar er valið
Slökkva
.
•
Breyta PIN f. öryggiseiningu
til að breyta PIN-númeri fyrir öryggiseininguna ef öryggiseiningin heimilar slíkt.
Færðu inn gildandi PIN-númer og síðan nýja númerið tvisvar.
•
Breyta PIN fyrir undirskrift
. Veldu það PIN-númer undirskriftar sem þú vilt breyta. Færðu inn gildandi PIN-
númer og síðan nýja númerið tvisvar.
Sjá einnig
Aðgangskóðar, 12
.