Nokia 6030 - Hleðsla og afhleðsla

background image

Hleðsla og afhleðsla

Tækið gengur fyrir rafhlöðu sem hægt er að endurhlaða. Rafhlaða nær ekki fullum afköstum fyrr en hún hefur verið hlaðin og
afhlaðin tvisvar til þrisvar sinnum. Hægt er að hlaða og afhlaða rafhlöðu nokkur hundruð sinnum en að því kemur að hún
gengur úr sér. Þegar tal- og biðtími er orðinn mun styttri en eðlilegt er skal skipta um rafhlöðu. Aðeins skal nota rafhlöður
sem samþykktar eru af Nokia og aðeins skal endurhlaða rafhlöðu með hleðslutækjum sem Nokia hefur samþykkt til notkunar
með þessu tæki.

Taka skal hleðslutækið úr sambandi við rafmagnsinnstungu og tækið þegar það er ekki í notkun. Ekki má hafa fullhlaðna
rafhlöðnu í sambandi við hleðslutæki þar sem ofhleðsla getur stytt líftíma hennar. Fullhlaðin rafhlaða tapar hleðslunni smátt
og smátt ef hún er ekki í notkun.

Ef rafhlaðan er alveg tæmd geta liðið nokkrar mínútur þar til hleðsluvísirinn birtist á skjánum eða þar til hægt er að hringja.

Aðeins skal nota rafhlöðuna til þess sem hún er ætluð. Aldrei skal nota skemmt hleðslutæki eða rafhlöðu.

Gæta skal þess að valda ekki skammhlaupi í rafhlöðunni. Skammhlaup getur orðið fyrir slysni þegar málmhlutur, svo sem
mynt, bréfaklemma eða penni veldur beinni tengingu milli + og - skautanna á rafhlöðunni. (Þau líta út eins og málmrendur á
rafhlöðunni.) Til dæmis getur þetta gerst þegar vararafhlaða er höfð í vasa eða tösku. Skammhlaup milli skautanna getur
valdið skemmdum á rafhlöðunni eða hlutnum sem veldur tengingunni.

Ef rafhlaðan er skilin eftir í miklum hitum eða kuldum, til dæmis í lokuðum bíl að sumar- eða vetrarlagi, dregur það úr
afkastagetu hennar og endingu. Æskilegt er að rafhlaðan sé alltaf höfð í hita á milli 15°C og 25°C (59°F og 77°F). Tæki með of
heitri eða of kaldri rafhlöðu getur orðið óvirkt um tíma, þó svo að rafhlaðan sé fullhlaðin. Einkum hefur mikið frost
takmarkandi áhrif á rafhlöður.

Ekki má fleygja rafhlöðum í eld þar sem þær geta sprungið. Rafhlöður geta einnig sprungið ef þær skemmast. Farga skal
rafhlöðum í samræmi við staðbundnar reglugerðir. Skila skal þeim í endurvinnslu þegar mögulegt er. Ekki skal fleygja þeim
með heimilisúrgangi.

background image

63

Copyright

© 2006 Nokia. All rights reserved.